Les-Tartes
Les-Tartes á Myspace
12.03.2008 22:05:15 / hildur

Blah

Hahahha. Það er ótrúlega fyndið að vera að blogga á þessa síðu aftur. En ég neyðist til þess því annars mun hún hverfa - fékk einhvern póst um það, og ekki viljum við að síðan hverfi o sei sei nei.

Ég hef samt ekkert að segja, þessi síða er alveg mjög dauð

Kær kveðja

Hildur :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.02.2007 21:03:27 / Tinna

!

  

Hæb, bara láta ykkur vita stúlkur að ég er hætt í síðunni, ekki illa meint eða neitt alls ekki, bara útaf smá dóteríi sem ég nenni nú ekki að útskýra hér ;)

-Tinna :)


» 7 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 13:08:54 / eyrun

heiheihei

nei sælar stelpur. langt siðan að ég lét heyra í mér. en allavega ég var að pæla hvort að ég ætti að bjóða ykkur i mat á næstunni, það er ýmislegt sem að ég þ.arf að segja ykkur. allt frá hneikslandi sorglegu og spennandi og sætu.. og ég er að tala um allan. pakkan, en allavega þar sem að ég er að byrja uppá nýtt í islebsku 303 var ég að spá hvort að ég gæti fengið lánaða snorra-eddu hjá einhverri ykkar. ég er búin að týna minni. (ég skila henni auðvitað) bara svoldið óþægilegt að vera í þ.essum tímum oig mæta aldrei með bók... en hei það er verið að sækj mig í skolan svo að blessbless.. og við verðum í bandi sambandi um matarboðið;)

yeee


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.01.2007 20:48:31 / Tinna

.

Heeeib!

Kíkti smá á þarna forsöngvakeppnina f. júróvísjon sem er einmitt núna á rúúv og sjit... þau þrjú lög sem eru komin eru bara sjúúúklega leiðinleg :| Glatað!

Eeeeen jæja, hún Hófý átti afmæli í gær, til hamingju með það ;* Fór í matarboð til Rakelar um kveldið með nokkrum stúlkum, takk fyrir mig sæta :D ;* Eldaði lasagna fyrir okkur og svona fínerí! Síðan fóru ég, Rakel, Nína og Ragnheiður til Svölu þar sem var smá afmælisparty fyrir Hófý! Allir hressir og bara mjööög gaman. Svo gisti ég nú bara hjá Atla

Dagurinn í dag er bara búinn að einkennast af letingjaskap og sjónvarpsglápi :/ Hafði mig ekki í það að drulla mér í að byrja að lesa leiðinlegustu bók allra tíma, Lord of the flies... Djæs.

Blees8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.01.2007 15:03:16 / Tinna

.

Halló

Langt síðan ég hef nennt að blogga hér.. og áður en ég gleymi því þá var ég að setja inn myndir úr matarafmælisboði Dóru sem var á föstudaginn :)

http://pbase.com/doruafmaeli

Ég get ekki hætt að hugsa um sumarið. Ég hlakka svo til þegar göturnar eru lausar við snjó og slabb, og allt er orðið þurrt og grænt. Djæsus. Og ég þarf ekki að fara í þykka úlpu og með vettlinga og frjósa úr kulda og allur skólinn er blautur og skítugur. Allt verður svo bjart og HEEEEIIITT... eða kannski ekki heitt, en allavega hlýrra:D Og það er hægt að labba í bænum í hádegishléum, án þess að frjósa í hel, og fara í sólbað og allt það... og ég tala nú ekki um sumarfríið! Það styttist samt í Nemó og Árshátíð Kvennó, Tjarnardagar sem því fylgja og allt það. Það er gaman :) Hlakka samt meira til Grímuballsins, sem var sjúúkt skemmtilegt í fyrra, hef sjaldan farið á svona  skemmtilegt ball! Vonandi verður það bara eins og í fyrra, á NASA og með Pál Óskari <3

Svo greip mig líka þessi óstjórnlega löngun í föt, sem er sosem ekkert nýtt. Og líka það að fara til New York og Kaupmannahafnar. Og versla...og bara vera þar og hafa gaman..

En núna er ég bara veik hjemme..

Kíkið á mynderrr

-Tinna :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.01.2007 18:09:34 / dóra

blalalalaladlaaamaaaa

Já ég vei, langt síðan ég hef látið heyra frá mér. Ég er bar svolítið of óspennandi til að vera að eyða í það orðum (og að ég tali nú ekki um tíma). En samt sem áður er eitthvað vald þarna úti, álíka óskiljanlegt og óútskýranlegt og súkkulaðiþrá, sem togar í mann, ýtir manni niður í stólinn og byrja að pikka á lyklaborðið, burtséð frá mikilvægi efnisins  sem bloggað er um. Ekki fundið fyrir þessu, nei?

Anyhoo, ég er byrjuð í nýjum skóla! Jáveijáveivei fyrir mér, ég er ógeeeeeðslega hugrökk. Ég er farin úr Kvennó, þar sem kennararnir dirfast að mæta á réttum tíma á mánudagsmorgnum og verða aldrei veikir, þar sem málfræðikunnátta er talin ein af grunnþörfum mannsins (þó mér finnist hún ágæt), þar sem eru TÍU klósett fyrir allan skólann (já ,ég taldi!) rúmlega fimmhundruð manns. Jæja, ég ætla að hætta dissinu. Ég sakna samt stelpnanna minna, alveg ógillaógillaógilla mikið! :cry:

Ég er nefnilega geðveikur lóner í FB, læðist eftir göngum, meðfram veggjunum, í felubúningaátfittinu mínu, urra ef fólk spyr mig hvað klukkan sé og borða hádegismatinn minn EIN inná klósetti þar sem ég eyði líka frímínútunum.
Ókei, djók ekki alveg sona slæmt...... but still pretty close! ;)

Ég fór í fyrsta tímann minn í morgun, LIM 1136 (limlestingar) Listir og menning. Þar kennir mér maður að nafni Paolo M. Turchi Hann er Ítali og talar svona (“eh?” lesist með mafíóskum hreimi; exempl: “This is my cousin, Vinny eh?”): “Það er svona þegar maður skynjar listaverk eh? maður verður sjálfur eh? að túlka eh? hvaða heimssýn eh? listamaðurinn eh? hafði eða hefur eh?” Án djóks. Ég er samt að digga hann sko, við fenugm í hendurnar teikniblokk og áttum bara að teikna fullt af augum og stuff (var reyndar búin að gleyma hvernig augað leit nákvæmlega út, og kunni ekki alveg við mig að spyrja sessunaut minn hvort ég mætti sjá í honum augun, svo ég teiknaði myndasöguaugu). Paolo er líka feitur og sköllóttur.

Svo kom geeeeeeeeeeeðveikt lööööööööng eyða (sem reyndar eyðist því ég er að skipta  um hóp í HÖN2036)

Næst fór ég í AHS 1036 (afhausun) Almenn hönnunarsaga og kennarinn var bara með stutta kynningu á námsefninu, sem dæmi má nefna stúderingu steinaldartískunnar (jess, hún er til) og þar fram eftir götunum.

Síðan skráði ég mig í leikfimi, bara til að losna við öll ljótu götin. Ég hugsaði með mér: “Jæja, Dóra. Þú getur alveg drattast í gegnum eina önn af fótbolta, handbolta, körfubolta... þú hefur bara gott af því!” Þessi beisik formúla í Hagaskóla (ég tók aldrei leikfimi í Kvennó, er einfaldlega of kúl og fékk hana metna í FB svo ég losna algjörlega við Þjálfun, heilsa og annar viðbjóður-leikfimibók!)

En nei, kennarinn kom mér svo sannarlega á óvart. Í næsta tíma verða svokallaðar mælingar, hvað við getum æft mikið, hversu mikið við þolum og getum og fituprósentan mæld. Síðan púlum við eins og fjandinn sjálfur í kraftþjálfun, sundi, hlaupi, dansi, badminton og veggjatennis og síðan erum við mæld aftur til að sjá árangurinn. Awesome, ókeypis líkamsrækt! ;)

Síðasti tíminn var síðan bara venjuleg enska þar sem við lesum greinar um allskonar hrylling úr Times og Newsweek um Hannibal og slys og fleira!

Get ekki beðið eftir að fara í Sjónlistir á morgun, hef heyrt að það sé frekar speisað, allavega skildi ég ekkert í áfangalýsingunni, einhverskonar teikning!

Nóg í bili,

Dóra


» 7 hafa sagt sína skoðun

04.01.2007 22:38:55 / hildur

2006 MYNDAannáll!

Lag dagsins: Plantation – Kana
Skap dagsins: :haha:

Jæjja, gleðilegt nýtt ár! Í tilefni þess að 2007 er strax komið ætla ég að halda smá minnigarathöfn fyrir árið 2006 með tilheyrandi myndum og skemmtilegheitum, hér á þessu bloggi!

Árið 2006 var gott ár.. megi það aldrei gleymast!!!

Ég man reyndar ekkert tímaröðina svo ég skelli þessu helsta bara einhvernvegin inn. ENJOY! Og sjáumst í skólanum á morgun...ugh.




Það voru þónokkrar hljómsveitaræfingar á árinu...!
 
Linda að glamra

 
Dóra að spila á munnhörpuna!

KYK meðlimir í fantaformi! Eyrún&Dóra jammin'
Je t’aime, Lucy!

Og þar af leiðandi nokkrir tónleikar líka!

 
Dóra&Rakel ALVEG EINS

 
Við að spila!
Fyrri Viðarstokkur

 
Rakel & Hrefna&Hófý bakraddir


 
Axel&Einar! töff mynd
Seinni Viðarstokkur


 
Hópmynd.. oh sætu við

 
And again..
Gamla Bókó

Auk þess voru svo fullt af frábærum tónleikum yfir árið...:

*Hættu! Tónleikarnir
*José González
*Manchester tónleikarnir
*Ian Anderson
*Roger Waters
*Belle and Sebastian
*Sykurmolarnir
*Sufjan Stevens
..og svo má ekki gleyma
*SIGUR RÓS!
 
Frekar óskýr mynd.. Sigur Rós <3
Á Miklatúni

 
...Sem ég sá 4 sinnum yfir árið, alltaf jafn frábærir. Hápunkturinn samt tvímælalaust þegar þeir spiluðu í Ásbyrgi, það var bara once in a lifetime lífsreynsla en ekki bara tónleikar.

Svo voru auðvitað nokkrar tónleikahátíðir sem ég skellti mér á ásamt elítunni...

*Reykjavík Trópík


 

 
Ostuuuur




..hahaha! Skillz
ahahhahah!!:D
 

*Airwaves


Islands!!

http://render2.snapfish.com/render2/is=Yup6aQQ%7C%3Dup6%3DzqH%3AxxqUD7qRUrKxzX7BHpUUKxgXPoa%3F87KR6xqpxQQ0oxQPJxaPaxv8uOc5xQQQoal0JGPlelqpfVtB%3F*KUp7BHSHqqy7XH6gXPoa%7CRup6lQQ%7C/of=50,590,442


http://render2.snapfish.com/render2/is=Yup6aQQ%7C%3Dup6%3DzqH%3AxxqUD7qRUrKxzX7BHpUUKxgXPoe%3F87KR6xqpxQQ0oxQPJxaPaxv8uOc5xQQQoal0JG0PJlqpfVtB%3F*KUp7BHSHqqy7XH6gXPoe%7CRup6lQQ%7C/of=50,590,442
hahhaa, best!!

* og svo HRÓARSKELDA, sem var bara klárlega toppurinn á árinu!!!

   
En ekki var bara leikið og skemmt sér, því jújú námsmenn þurfa að vinna! Sem varð til þess að ég drattaðist í bæjarvinnuna.. sem ég liti ábyggilega á sem ein verstu mistök ævi minnar, hefði ég ekki kynnst krökkunum þar og þá sérstaklega Kjarra&Arnari&Snorra&Ága, en þetta var klárlega besti hópur ever. 

 
Krúið ;D

Þrátt fyrir þetta ákváðum við Kjartan að beila og ég fór að vinna í Skífunni þar sem ég er enn og mér líkar það bara mjög vel!

Árið 2006 var reyndar rosalegt vinnuár fyrir mig.. því ég hafði aldrei áður unnið! En prófaði nokkra staði og fann loks hvar ég vildi vinna.

Byrjaði í Regnboganum og Te&Kaffi á sama tíma, í byrjun ársins 2006 en hætti fljótlega í Te&Kaffi. Á sama tíma byrjaði ég að skrifa hjá Rjómanum. Vann svo við Alþjóðlegu Kvikmyndahátíðina við að hafa umsjón með Tjarnarbíói og á þeim tíma var ég í 5 vinnum: Tjarnarbíói, Regnboganum, Rjómanum, Rás2 og Skífunni.
Þetta var svooooolítið of mikið svo ég hætti í Regnboganum, Kvikmyndahátíðin kláraðist og ég er enn í hinum 3 vinnunum sem eru alveg frekar stór partur af árinu í minningunni.

En eins og ég kynntist krökkunum í bæjarvinnunni betur kynntist ég fleirum sem  ég gæti ekki verið þakklátari fyrir.

Unnur setti svip á sumarið...:)

Hahahha! Unnur&Jónatan

 
Unnur töffster!
Unnur&Togga&Rakel


og Steingerður einnig,
 
Besta mynd í heimi!


Við Þorvaldur urðum fljótlega hinir mestu mátar

 
Þorvaldur&ég að worka

Axel kom sterkur inn um haustið
 
Axelpaxel..


Kynntist Óla&Bjössa meira

 
Óli töffster

&

 
Bjössi kisulóraa

Við Guffi urðum best buds
Guffmaster

Sem og ég&Kjarri

 
Ég fór að hanga mun meira með Gunnhildi

 
Gunnhildur hress!

Og síðast en ekki síst kynntist ég henni Rakel Mjöll !

 
Sæta sæta..


Mjög þakklát fyrir þetta elskurnar mínar... :) Þið eruð æði! ..Og að sjálfsögðu líka gamla krúið, Tinna&Dóra&Linda og þið hin, takk fyrir frábært ár :)

Saman brölluðum við svo margt skemmtilegt, svosem:


*Lautarferðir

 

 
Kjarri&Linda, sáttu börn


 
Svolítið skökk mynd hjá mér,, eh


*Myndaflippz&almennur hressleiki

   
Stúkurnar að dansa!

 
Gunna&Ég&AnnaHelen


 
Gaaaaze into the future..!


*Ammæli

 
Hófý&Gerða&Hildur&Kata&Svala&Eyrún!


   
Uppstillta myndin hennar Racheeeel! (ég eyðilagði hana)


*Partí/tjill

 
Þorvaldur&Bjössi&Guffi&Tinna


 
Linda&Addi dúllur

 
Svalir..

 

 
Oh þið eruð töff ;D Siggi, Arnar, Styrmir og Hillz




OG ÞETTA ER BARA BROT!:haha::haha::haha:

Saman gerðum við árið 2006 að alveg hreint FRÁBÆRU ári og ég vona innilega að þið séuð sammála því að við gerum árið 2007 jafnvel bara ENN BETRA!!!! :D:D:D:D

Takk fyrir skemmtilegasta árið mitt hingað til,

-Hildur Maral!

PS. Þið megið endilega kommenta og helst ekki yfirblogga því þetta tók alveg alltof langann tíma! ;)

























» 4 hafa sagt sína skoðun

30.12.2006 04:59:43 / rakel

DJ Jzazzy JEff

Ég var að kaupa mér æðislega hressandi geisladisk : hann heitir DJ Jazzy Jeff & the Fresh Prince

Fyrir ykkur sem horfðu ekki á stöð tvö þegar þið voruð lítil eða rákust ekki á besta þætti alheimsins þá leikur Will Smith a.k.a The Fresh Prince of Bel Air aðalhlutverkið :D! þessi mynd er á plötu umslaginu :

Svalir í the 90's !

Mæli með honum , þar eru slagarar eins og "I think I can beat Mike Tyson" og "Parents just dont understand" og svo má ekki gleyma "Boom! Shake the Room"  Klassik nínteis slagarar hér á ferð!

úff Will Smith alltaf góður !

Annar er það Fresita jarðarberakampavín um áramótin og gleði og tár að vana! Gleðilegt nýtt ár (bráðum) og hjartanlega takk fyrir sl ár, its been Fab, og hey rétt eftir áramótin getum við fagnað að þið hafið þekkt mig og ég ykkur í ár :D!! hurray skál fyrir því!

Yndislegt Afmæli hildur, cheers! sé ykkur í smárabíó : Rakel kveður:

Brostu framan í heiminn !!


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.12.2006 22:43:55 / hildur

DvergaVEI

Lag dagsins: I Me Mine - The Beatles
Skap dagsins: :haha::haha::haha:

Gleðileg jól og gleðilegt afmæli (á la Linda) fyrir mig því ég átti ammæli í gær :) loooksins! ansi góð tilfinning að vera loksins orðin 17, en samt voða lítil breyting eitthvað :P Annars vildi ég bara tilkynna ykkur að ég var að kaupa mér BÍTLABOXIÐ...sem lítur nákvæmlega svona út:

http://www.oldies.com/i/boxart/large/13/077779130221.jpg
:haha:

Það á að kosta 22.000 og í því eru ALLAR Bítlaplöturnar, en ég fékk það á 6000 :D út af gjafabréfum og eitthvað. Og svo fæ ég meiraðsegja eitthvað endurgreitt af 6000kallinum vegna Skífuafsláttarins. Ég elska boxið mitt!Það er fallegast í heimi!

Annars er ekkert að frétta, jólin búin að vera fín bara ... :) FAMR með tvenna tónleika í gær og hinn og báðir voru mjög fínir.. þeir komu svo+Linda til mín í gær og við borðuðum ammælisköku og horfðum á Benjamín Dúfu.. sem er ein sorglegasta mynd sem ég hef séð. Langt síðan ég hafði séð hana líka!

En ég ætla að fara að hafa mig til, afmælismatur á Shalimar eftir klukkutíma og svo HAPPY FEET!!! :D


The image “http://www.cinempire.com/multimedia/Happy-Feet/images/02.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.

Get ekki beðið!!!:haha::haha::haha:

Takk annars fyrir jólagjafirnar elskurnar mínar. Allt mjög sætt og flott :)

Sé ykkur eftir smá!

Kv.Hildur Maral 17 ára :haha:



» 2 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 23:56:50 / eyrun

jól

takk kærlega fyrir mig stelpur. ég er í jola gjöfinni minnu nuna og er búin að vera í henni i kvöld;). ég vona að þið séuð ánægðar með ykkar;). gleðileg jól og hafið það gott um áramótin. reynum að hittast sem fyrst

» 4 hafa sagt sína skoðun

21.12.2006 17:43:27 / rakel

yell

það var svo gaman á ballinu í gær, besta ballið á þessari önn ! "KLÁRLEGA !!"- orðið mitt í gær ;) annar þakka ég fyrir gott ball, eyrún mín ertu búin að finna kápuna þína ? 

Annars heyri ég í ykkur á Þorláksmessu, allir niður í bæ !:D ( þótt að það sé spáð stormur... but hey what the hell!:D)

Gleðileg Jól ó Hóhóhó Gleðileg Jól !!!

Hver var annars að taka myndir í gær ? og stúlkur nenniði að setja inn myndirnar frá afmælinu mínu ;D? Fabulous

rakel kveður SÁTT!

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.12.2006 15:06:58 / Tinna

4 dagar í jólin

Úff. Einkunnaafhending í dag. Ég er engan veginn sátt með þessar einkunnir mínar... Ég féll þó ekki í neinu né neitt þannig, en ég lærði einsog moðerfokker fyrir þetta, og þá sérstaklega sögu.. Bögg.

Eeen reynum að líta á bjartari&betri hliðar, í kvöld er jólaball Kvennaskólans, og ætla ég allavega að skella mér á það.. Samt veit ég ekki í hverju ég ætla og það pirrar mig örlítið en það reddast..vonandi. Ég og Nína ætluðum bara að mæta neiked á ballið, þar sem hún fann ekki heldur föt, en þetta er oft það sem ég ætla að gera bara fyrir hvern einasta atburð, því ég finn mér aldrei föt. En sem betur fer reddast þetta nú alltaf.  Je.    

Ég skreytti herbergið mitt áðan, það er einsog þetta hafi verið gert af fagmönnum..segi núbara svona, það er allavega slatti af drasli hérna inni!

Hahahaha ojjjj hvað þetta er ljót jólakúla...

Svo kláraði ég að kaupa jólagjafir í gær.. léttir.

Og nú eru bara FJÓRIR DAGAR í jólin.. Pæliði í því.. svo kemur aðfangadagur og svo bara púff er hann búinn.. Og þá byrjar biðin upp á nýtt.. Neeeeei kannski ekki alveg, ég bíð þá bara eftir sumarinu, váá hvað ég hlakka til sumarsins... Heittoggott... nema kannski á Íslandi.

Haha jólalag í útvarpinu sem er um mann sem er niðríbæ en síðan verður hann skelfingu lostinn þegar hópur af litlum krökkum hópast í kringum hann og myndar hring utan um hann hahaha.. Og lagið er bara um hvað hann er hræddur við þau :'D

Haha

Ég er farin

-Tinna


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 22:04:42 / rakel

tilkynning!!

ég styð "þynnkuboð hjá Tinnu" a.k.a jólaboðið hennar sem hún gleymdi að halda á sunnudaginn !

annars var þessi helgi... æði:D!!!

Afmælið á föstudaginn heppnaðist ótrúlega vel, það var svooo skemmtilegt :D fór fram úr mínum vonum og ég var svo fegin að sjá hversu vel hafnfirska crewið blandaðist við reykvíska ! Besta afmælisveislan til þessa! Endurtek þetta næsta ár og þá verður það enþá flottari ;D

Og svo afmælisdagurinn sjálfur var yndislegur, fór með ömmu minni Ragnheiðyrniður í miðbæ og hún keypti handa mér jólakjól. Það var að snjóa og ég var í nýju rauðu kápunni minni og við skvízzurnar röltuðum niður laugarveginn í leit að the perfect dress og ég fann einn sætan! Verð í honum á jólaballinu :D

Kvöldið heppaðist stórkostlega vel líka, út að borða með einar, nett afmæli hjá kjartani, afmælisgestirnir fóru svo allir að glimmera sig og við röltuðum á Trabant tónleika. Einnig voru Steed Lord að spila og hairdoctor hottie-ið!

hurray gott kvöld. Ég er komin í jólafrííí, var í skötuveislu, ball og einkunnir á miðvikudaginn vúbídú!

fabulous!!

- tinna byrja plana ;) ég bíð spennt!

..hildur maral & dóra .. hvar eru myndir úr partínu :D ?? show me please


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 10:34:55 / Tinna

Heiheihei

Sælt veri fólkið

Prófin bara búin og allt það, megagaman! Föstudaginn eftir þau var bara eitthvað tjell, Atli kominn með bílpróf og kom að sækja mig svo var það bara Kringlan (er búin að fara einum of oft í þessa andsk... Kringlu) og eitthvað jólastússerí, borða og svona svo bara fórum við löt að horfa á mynd og svona. Afmæli hjá Rakel um kveldið, voðagaman fyrir utan að ég kom aaaallt of seint í það.. Kemur þó ekki á óvart þar sem ég er sein í ALLT, vinnuna, skólann, afmæli, party og bara alla planaða atburði... typical.

Svo einkenndist helgin af óhugnalega miklu tjilli... Hitti Atla, Hildi, Lindu og fl.. Bakaði piparkökur með familí, fór á jólatónleika, var sorgleg og fór í Kringluna á LAUGARDAGSKVÖLDI með systur minni. Toppiði það. Var bara ekkert í stuði til að fara eitthvað, súr ég veit, allir á Nasa á Trabant og Steed Lord. Sjæs. Ég fer bara í staðinn á jólaballið sem er á miðvikudaginn, hlakka bara nokkuð til.

Annars hef ég lítið sem ekkert að gera núna, vaknaði um áttaleytið hjá Atla þar sem hann skutlaði mér hjem því hann var að fara að vinna... Allir svo duglegir í kringum mig, vinna til tíu alla daga og eitthvað rugl.. En ekki ég, ónei. Þið getið fundið mig heima...sofandi? Eða komið að tjilla með mér?? Það væri líka mjög vel þegið. Eða þá ég fer bara milljón sinnum í Kringluna... Það EINA sem mér finnst örlítið stressandi og smá pirrandi við jólin eru jólagjafainnkaup. Ekki misskilja mig, ég elska að gefa gjafir og svona, bara þegar maður veit ekki alveghvað á að kaupa, þá er það bara helvítis vesen. Ekki komin með helming af jólagjöfum, ekkert búin að skreyta, kaupa jólatré né neitt. Eeen þetta kemur í vikunni, jólin alveg að koma 8| :)

Oh mig langar líka svo að fara á The Holiday..

En ég ætla að fara að horfa á einhverja jólamynd:haha:

Tinna


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.12.2006 16:02:14 / Tinna

Afmælisstelpa!

Prófin eru búin og í gær var svo magnað afmælisparty hjá Rakel sætu! Og stúlkan á svo afmæli í dag, og ætla ég bara að segja TIL HAMINGJU ELSKU RAKEL MÍN! Hafðu það alveg rosagott í dag ;*

Tinna :)

Rakel sæta í miðjunni!


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11